Ferguson: Held að Rooney gefi Fletcher flöskuna

Darren Fletcher, til hægri, fagnar með Nani félaga sínum.
Darren Fletcher, til hægri, fagnar með Nani félaga sínum. Reuters

Wayne Rooney og Sir Alex Ferguson hrósa Darren Fletcher í hástert fyrir frammistöðu hans með Manchester United í leiknum gegn Arsenal á Old Trafford í gær. Rooney var valinn maður leikins af Sky og fékk að launum kampavínsflösku sem Ferguson telur Rooney muni glaður gefa Fletcher.

,,Ég held að Wayne gefi Fletcher flöskuna,“ sagði Ferguson sposkur á svip í viðtali við Sky Sports. ,,Darren var hreint magnaður út um allan völl. Hann er alltaf góður í stóru leikjunum,“ sagði Ferguson.

,,Ég hef sagt það margoft, framherjar skora mörkin og hafa tilhneigingu að fá viðurkenningu sem menn leiksins. En mín skoðun er sú að Fletcher hafi borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á vellinum,“ sagði Rooney.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert