Liverpool og Arsenal að vinna

Moussa Dembele og Andrei Arshavin í baráttunni í viðureign AZ …
Moussa Dembele og Andrei Arshavin í baráttunni í viðureign AZ Alkmaar og Arsenal. Reuters

Liverpool og Arsenal eru bæði yfir gegn andstæðingum sínum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu en átta leikir er á dagskrá í kvöld.

Yossi Benayon kom Liverpool yfir gegn Lyon á Anfield með föstu skoti á 41. mínútu leiksins og ekki mátti miklu muna að Liverpool bætti við fleiri mörkum fyrir leikhlé.

Arsenal er 1:0 yfir á móti AZ Alkmaar í Hollandi og skoraði Cesc Fabregas markið á 36. mínútu.

Evrópumeistarar Barcelona er óvænt undir á heimavelli gegn Rubin Kasan.

Óvænt staða er einnig í Mílanó þar sem Ítalíumeistarar Inter eru að tapa fyrir Dynamo Kiev. Dejan Stankovic skoraði mark Inter en Mikhalik og sjálfsmark frá Lucio hafa sett mörkin fyrir úkraínska liðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert