Wes Brown: Drogba braut á mér

John Terry skorar sigurmarkið á Stamford Bridge í gær.
John Terry skorar sigurmarkið á Stamford Bridge í gær. Reuters

Wes Brown varnarmaður Manchester United segir að Didier Drogba hafi brotið á sér rétt áður en John Terry skallaði boltann í netið í viðureign Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge í gær. Markið var dæmt gott og gilt og reyndist sigurmark leiksins en leikmenn United mótmæltu því kröftuglega.

,,Aukaspyrnudómurinn var mjög harður og síðan hélt Drogba mér og togaði mig niður í vítateignum,“ sagði Brown við MUTV sjónvarpstöðina eftir leikinn í gær. ,,Það er erfitt að taka þessu tapi því mér fannst við spila virkilega vel. Við vorum betri aðilinn og náðum að skapa okkur fleiri færi en Chelsea og því voru þessi úrslit alls ekki sanngjörn,“ sagði Brown.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka