Brasilía lagði England að velli

Fabio Capello þjálfari Englendinga mátti sætta sig við tap í …
Fabio Capello þjálfari Englendinga mátti sætta sig við tap í kvöld. Reuters

Brasilíumenn sigruðu Englendinga, 1:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Doha í Persaflóaríkinu Katar í kvöld.

Nilmar skoraði sigurmark Brasilíumanna í upphafi síðari hálfleiks með glæsilegum skalla eftir langa sendingu frá Elano.

Skömmu síðar fengu Brasilíumenn vítaspyrnu. Wes Brown átti misheppnaða sendingu á Ben Foster, markvörð Englands. Luis Fabiano náði boltanum en Foster braut á honum. Fabiano tók vítaspyrnuna sjálfur en skaut hátt yfir enska markið.

Noregur vann Sviss í vináttulandsleik á útivelli í kvöld. John Carew skoraði sigurmark Norðmanna á 49. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert