Gerrard í byrjunarliði Liverpool

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Reuters

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool verður í byrjunarliðinu gegn Manchester City en miðjumaðurinn snjalli er búinn að jafna sig af meiðslum og er klár í slaginn. Það er hins vegar ekki bakvörðurinn Glen Johnson en Yossi Benayoun, Albert Riera og Fabio Aurelio, sem hafa átt við meiðsli að stríða eru á bekknum í dag.

Lið Liverpool: Reina, Skrtel, Carragher, Agger, Insua, Mascherano, Lucas, Kuyt, Gerrard, Babel, Ngog. Varamenn: Cavalieri, Aquilani, El Zhar, Aurelio, Riera, Benayoun, Kyrgiakos.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert