Ferdinand með í slagnum gegn City?

Rio Ferdinand hefur lítið spilað í vetur.
Rio Ferdinand hefur lítið spilað í vetur. Reuters

Talsverðar líkur eru á því að Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins, spili sinn fyrsta leik í þrjá mánuði annað kvöld þegar United sækir heim grannana í Manchester City. Það er fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum deildabikarsins.

Ferdinand hefur glímt við þrálát bakmeiðsli og síðasti leikur hans, og sjá sjöundi á þessu tímabili, var gegn Liverpool í október. Hann hefur æft af krafti undanfarna daga og er talinn eiga góða möguleika á að spila annað kvöld.

Þá er ekki útilokað að Nemanja Vidic, hinn aðalmiðvörður United, verði líka leikfær en hann hefur verið frá keppni allan þennan mánuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert