Gerrard orðinn sá markahæsti

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Reuters

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er nú sá Englendingur sem hefur skorað flest mörk fyrir enskt lið á Evrópumótunum í knattspyrnu en Gerrard skoraði sitt 33. Evrópumark í kvöld.

Gerrard innsiglaði sigur Liverpool gegn rúmenska liðinu Unirea Urziceni og komst þar með frammúr Alan Shearer. 

,,Við vissum fyrir leikinn að hann yrði erfiður. Unirea er ekki slakt lið og aðstæður voru hryllilegar. Það var erfitt að hlaupa og stöðva sig en ég verð að hrósa félögum mínum fyrir að vera fastir fyrir. Við sýndum góðan karakter eftir að hafa lent marki undir og við komust inn í leikinn með frábæru mark frá Javier,“ sagði Gerrard við vef Liverpool og vildi lítið gera úr afreki sínu með því að skáka Shearer.

,,Sum mörkin hafa komið gegn léttum andstæðingum sem ég held að það sé ekki sanngjarnt að ræða um umfram Shearer.“



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert