Gylfi: Eitt mitt fallegasta mark

Gylfi Þór Sigurðsson fagnar sigurmarkinu gegn WBA ásamt félögum sínum.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar sigurmarkinu gegn WBA ásamt félögum sínum. www.readingfc.co.uk

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður íslenska 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, segir að sigurmarkið fyrir Reading gegn WBA í ensku bikarkeppninni í gærkvöld, 3:2, sé eitt fallegasta mark sem hann hafi skorað.

Gylfi skoraði markið eftir fimm mínútna leik í framlengingu en Reading hafði jafnað metin í 2:2 í uppbótartíma, á útivelli gegn einu toppliða 1. deildar. Reading er þar með komið í 8-liða úrslit bikarsins í fyrsta skipti í 83 ár og leikur þar við Aston Villa á heimavelli 7. mars.

Gylfi skrúfaði boltann yfir markvörðinn og í netið af rúmlega 20 metra færi. Hann er markahæsti leikmaður Reading á tímabilinu með 10 mörk.

„Þetta er eitt mitt albesta mark. Ég gerði líka fallegt mark gegn Burton fyrr í vetur en þetta var mikilvægara. Ég fékk boltann frá Church og hefði getað gefið hann áfram til hægri, en ég ákvað að skjóta og sem betur fer lá hann í netinu. Ég þurfi að skjóta með snúningi vegna þess hvernig boltinn kom til mín.

Ég hafði áður skotið í þverslána og hefði líka viljað sjá þann bolta liggja í netinu. En sigurinn er aðalatriðið og nú verðum við að einbeita okkur að deildaleiknum um helgina," sagði Gylfi í viðtali á vef Reading.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert