Reina áfram í herbúðum Liverpool

Pepe Reina.
Pepe Reina. Reuters

Fram kemur í netútgáfu enska blaðsins Liverpool Echo í dag að spænski markvörðurinn Pepe Reina hafi samþykkt að gera nýjan samning við Liverpool.

Reina gekk í raðir Liverpool frá spænska liðinu Villareal og hefur Spánverjinn reynst liðinu ákaflega vel og hefur verið einn besti markvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni.

Samningurinn sem Reina hefur samþykkt að gera mun gilda út leiktíðina 2014-15

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert