Pavlyuchenko með tvö í sigri Tottenham

Roman Pavlyuchenko skoraði tvö mörk fyrir Tottenham í dag.
Roman Pavlyuchenko skoraði tvö mörk fyrir Tottenham í dag. Reuters

Tottenham styrkti stöðu sína í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 3:1 sigri gegn Blackburn á White Hart Lane í dag. Eiður Smári Guðjohnsen lék fimm síðustu mínúturnar fyrir Tottenham en hann leysti Luka Modric af hólmi á miðjunni.

Roman Pavlyuchenko hélt uppteknum hætti en rússneski framherjinn skoraði tvö marka Tottenham en Jermain Defoe kom Lundúnaliðinu á bragðið þegar hann skoraði fyrsta markið. Christopher Samba skoraði mark Blackburn og minnkaði muninn í eitt áður en Pavlyuchenko innsiglaði sigur Tottenham

Tottenham hefur nú 52 stig í fjórða sætinu, er þremur stigum á undan Manchester City.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert