Rooney með enn eina viðurkenninguna

Wayne Rooney heldur á syni sínum, Kai Rooney, eftir leikinn …
Wayne Rooney heldur á syni sínum, Kai Rooney, eftir leikinn gegn Stoke í gær. Reuters

Wayne Rooney heldur áfram að sanka að sér viðurkenningum fyrir frammstöðuna með Manchester United á leiktíðinni. Sérstök valnefnd á vegum Barclays, aðalstyrktaraðila ensku úrvalsdeildarinnar, hefur valið Rooney leikmann ársins.

Áður höfðu leikmenn í deildinni, fréttamenn og leikmenn og stuðningsmenn Manchester United valið Rooney sem leikmann ársins en hann skoraði 26 mörk í þeim 32 leikjum sem hann spilaði í deildinni.

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham var útnefndur stjóri ársins en undir hans stjórn varð Tottenham í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert