Benítez er farinn frá Liverpool

Rafael Benítez hefur yfirgefið Liverpool.
Rafael Benítez hefur yfirgefið Liverpool. Reuters

Liverpool tilkynnti rétt í þessu að knattspyrnustjórinn Rafael Benítez væri farinn frá Anfield, eftir að samkomulag um það hefði tekist á milli hans og félagsins.

Benítez, sem er fimmtugur, hefur stýrt Liverpool í sex ár og það varð Evrópumeistari á fyrsta árinu undir hans stjórn, 2005. Frá því hefur liðinu ekki tekist að standa fyllilega undir væntingum og hafnaði aðeins í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili.

Benítez skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool í mars 2009.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert