Arsenal lagði Celtic og vann Emirates mótið

Johan Djourou leikmaður Arsenal í baráttu við Morten Rasmussen á …
Johan Djourou leikmaður Arsenal í baráttu við Morten Rasmussen á Emirates Stadium í dag. Reuters

Arsenal sigraði Celtic, 3:2, og hrósaði þar með sigri á Emirates mótinu í knattspyrnu árið 2010 en fyrr í dag skildu franska liðið Lyon og AC Milan frá Ítalíu jöfn, 1:1.

Arsenal komst í 3:0 á fyrstu 50 mínútum leiksins með mörkum frá Carlos Vela, Bagary Sagna og Samir Nasri en Skotarnir áttu góðan endasprett og náðu að laga stöðuna með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungi leiksins.

Byrjunarlið Arsenal: Almunia, Sagna, Vermaelen, Djourou, Clichy, Frimpong, Rosicky, Wilshere, Walcott, Emmanuel-Thomas, Vela.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert