Ferdinand ekki klár fyrr en eftir sex vikur

Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand. Reuters

Rio Ferdinand verður ekki klár í slaginn með Manchester United fyrr en í lok september. Þetta upplýsti Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins á vikulegum fréttamannafundi í dag.

Ferdinand er enn að jafna sig eftir hnémeiðsli sem hann varð fyrir á æfingu enska landsliðsins rétt fyrir HM. Ferguson hafði vonast til að miðvörðurinn gæti byrjað að spila um miðjan næsta mánuð en Ferguson sagði í dag að sex vikur væru í að leikmaðurinn gæti spilað aftur.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert