Curbishley í viðræðum við Aston Villa

Alan Curbishley.
Alan Curbishley. Reuters

Alan Curbishley, fyrrum knattspyrnustjóri Charlton og West Ham, er í viðræðum við Aston Villa um að taka við stjórastarfinu hjá félaginu í stað Martin O'Neills sem hætti störfum í síðasta mánuði.

Curbishley, sem á árum áður lék með Aston Villa, sagði upp störfum hjá West Ham fyrir nákvæmlega tveimur árum síðan en Eggert Magnússon réði hann til starfans hjá Lundúnaliðinu. Hann hefur síðan verð orðaður við mörg félög.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert