Eiður varamaður gegn West Ham

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eiður Smári Guðjohnsen er á meðal varamanna Stoke City sem fær West Ham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikur liðanna hefst kl. 11.45 á Britannia leikvanginum í Stoke.

Jermaine Pennant, sem kom til Stoke á sama tíma og Eiður, fær tækifæri í byrjunarliðinu í dag. Liðin eru þannig skipuð:

STOKE (4-4-2): Sörensen; Huth, Shawcross, Faye, Collins; Pennant, Delap, Whitehead, Etherington; Jones, Walters.
Varamenn: Begovic, Higginbotham, Whelan, Eiður Smári, Fuller, Wilson, Wilkinson.

WEST HAM (4-4-2): Green; Jacobsen, Da Costa, Upson, Gabbidon; Behrami, Parker, Noble, Piquionne; Obinna, Cole.
Varamenn: Stech, Tomkins, Barrera, Boa Morte, Kovac, McCarthy, Faubert.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert