Redknapp: Yfirspiluðum þá í allt kvöld

Peter Crouch fagnar marki sínu á White Hart Lane í …
Peter Crouch fagnar marki sínu á White Hart Lane í kvöld. Reuters

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham hrósaði Gareth Bale í hástert eftir sigurinn á Inter í Meistaradeildinni í kvöld. Bale, sem skoraði öll þrjú mörk Tottenham í fyrri rimmu liðanna, lagði tvö mörk upp í kvöld og lék varnarmenn Inter hvað eftir annað grátt í leiknum.

,,Bale var stórkostlegur. Þeir eru að taka af honum lyfjasýni. Lyfjaeftirlitsmennirnir eru hér og ég vona að þeir taki hann í lyfjapróf.  Það sem drengurinn getur hlaupið er hreint með ólíkindum og það sem hann hefur gert á móti bakverðinum sem er talinn besti hægri bakvörður heims er hreint stórkostlegt.

Þetta var frábært kvöld. Frá fremsta manni til hins aftasta þá spiluðum við ótrúlega vel. Við pressuðum Inter mennina út um allan völl og yfirspiluðum þá í allt kvöld,“ sagði Redknapp, sem gat ekki leynt gleði sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka