Suarez með Liverpool gegn Stoke

Luis Suarez.
Luis Suarez. www.liverpoolfv.tv

Liverpool teflir framherjanum Luis Suarez fram í leiknum gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni en Úrúgvæinn sem gekk í raðir Liverpool frá Ajax í vikunni er kominn með leikheimild. Kenny Dalglish valdi Suarez í leikmannahópinn en hinn nýi maðurinn, Andy Carroll, er meiddur og spilar ekki í kvöld.

Liverpool á harma að hefna en þegar liðin áttust við á Britannia um miðjan nóvember hafði Stoke betur, 2:0.

Stoke hefur aldrei náð að leggja Liverpool að velli á Anfield í efstu deild en liðin hafa mæst 47 sinnum. Stoke hefur gengið afar illa á þessum sögufræga velli og hefur aðeins innbyrt tvö stig í síðustu 26 leikjum sínum þar.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert