Glæsimark Jóhannesar (myndband)

Jóhannes Karl í búningi Huddersfield.
Jóhannes Karl í búningi Huddersfield. www.htafc.com

Jóhannes Karl Guðjónsson tryggði Huddersfield sigur á Charlton, 1:0, á útivelli í ensku 2. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn, með glæsimarki beint úr aukaspyrnu.

Markið má sjá hér fyrir neðan en það gerði Jóhannes sjö mínútum fyrir leikslok, og fyrir vikið er Huddersfield jafnt Southampton að stigum í 2.-3. sæti deildarinnar. Myndbandið er greinilega tekið af stuðningsmanni Huddersfield, beint fyrir aftan mark Charlton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert