Nani: Svona er Man. United

United-menn fagna Samfélagsskildinum.
United-menn fagna Samfélagsskildinum. Reuters

„Svona er United. Við missum aldrei trúna og strákarnir voru allir fullvissir um að við myndum skora í seinni hálfleiknum,“ sagði Portúgalinn Nani sem skoraði tvívegis fyrir Man. Utd í sigrinum á Man. City í leiknum um Samfélagsskjöldinn.

United lenti 2:0 undir í fyrri hálfleik en tókst að snúa leiknum sér í vil í seinni hálfleik og Nani skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

„Stjórinn sagði við okkur að við þyrftum bara að skora fyrsta markið, þá yrði eftirleikurinn auðveldari. Það er gott að vinna svona þegar maður er að spila gegn Man. City. Stuðningsmenn okkar eru eflaust stoltir í dag. Þetta er frábær dagur,“ sagði Nani.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert