Pepe Reina, markvörður Liverpool, segir að sínir menn þurfi að stöðva Luka Modric og Gareth Bale til að geta sigrað Tottenham í stórleik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer á Anfield í kvöld.
„Tottenham er í þriðja sæti sem stendur, og þar með verður þetta ekki auðvelt, en við spilum á Anfield og höfum styrk til að sigra. Tottenham byggir sinn leik á Bale og Modric, og það gengur vel upp, þannig að við verðum að stöðva þá tvo,“ sagði Reina í viðtali við netmiðilinn Goal.com.
„Þetta er leikur þar sem við þurfum að leggja allt í sölurnar, en ef við ætlum að komast ofar á töflunni verðum við að vinna. Mótherjar okkar eru með mjög hættulega sóknarmenn og vörnin okkar verður að vera vel á verði og halda einbeitingu gegn leikmönnum eins og Defoe og Adebayor. Við verðum að taka fast á þeim, annars getur farið illa. Spurs hefur átt góðu gengi að fagna og þar með verður þetta flottur fótboltaleikur,“ sagði Reina.