Ensku knattspyrnufélögin Arsenal og Aston Villa eru komin í kapphlaup við ítölsku risana Inter Mílanó og Juventus um að krækja í Gylfa Þór Sigurðsson, ef marka má enska netmiðla í dag.
Þetta er m.a. fullyrt á netmiðlinum footie-online sem fjallar um Gylfa, brotthvarf hans frá Hoffenheim og velgengnina hjá Swansea City.
Gylfi fær alls staðar ágæta dóma fyrir frammistöðu sína með Swansea í sigrinum óvænta á Manchester City, 1:0, í gær.