Redknapp: Þeir áttu þetta skilið

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham.
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham. Reuters

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham þurfti að horfa upp á sína menn tapa fyrir Norwich 2:1 á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tottenham og Newcastle eru nú jöfn að stigum í 4.-5. sæti.

Redknapp sagði að Norwich-menn væru vel að sigrinum komnir.

„Þeir áttu þetta skilið. Við ollum vonbrigðum. Ég breytti leikkerfinu í 4-4-2 og við vorum of opnir fyrir. Þeir stríddu okkur svolítið. Þetta var erfiður dagur fyrir strákana í vörninni. Þetta var slæmur dagur en við verðum að fara að spyrna við fótum,“ sagði Redknapp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert