Drogba á fullu á Camp Nou

Didier Drogba fagnar sigurmarki sínu í fyrri leiknum gegn Barcelona.
Didier Drogba fagnar sigurmarki sínu í fyrri leiknum gegn Barcelona. AFP

Vafi hefur þótt leika á því hvort Didier Drogba gæti spilað með Chelsea gegn Barcelona annað kvöld þegar liðin mætast öðru sinni í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Camp Nou í Barcelona.

Samkvæmt enskum fréttamönnum er Drogba á fullri ferð á æfingu með Chelsea á Camp Nou þessa stundina. Hleypur, þrumar í boltana, engin merki sjáanleg um meiðsli í hné. Lítur út fyrir að vera heill en RDM (Roberto Di Matteo) segist taka endanlega ákvörðun í fyrramálið," skrifar Henry Winter, íþróttafréttamaður Daily Telegraph, á Twitter.

Drogba skoraði sigurmarkið í fyrri viðureign liðanna á Stamford Bridge í síðustu viku, 1:0.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert