Ástralinn Tim Cahill, sem lék með Everton við góðan orðstír í mörg ár en fór frá félaginu til New York Red Bulls í sumar, hefur hug á að snúa aftur til Liverpool-borgar á lánssamningi til að spila með sínu gamla félagi.
New York-liðinu mistókst að komast í úrslitakeppni MLS-deildarinnar og því vill Cahill koma aftur í ensku úrvalsdeildina.
„Þessi vistaskipti mín í sumar þýða að ég get notið þess að spila í MLS-deildinni en líka átt þess kost að koma aftur í ensku úrvalsdeildina og spila í bestu deild í heimi. Ég er mjög spenntur fyrir því að snúa aftur og vonandi er hægt að semja um það við Everton. Það væri frábært en ég ræð því ekki,“ sagði Cahill.