Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, tryggði í gærkvöld háskólaliði Florida State sigur í Atlantshafsdeildinni í Bandaríkjunum þegar hún skoraði sigurmarkið í úrslitaleik hennar gegn Virginia Tech, 1:0.
Þetta var tíunda mark Dagnýjar á tímabilinu en hún hefur verið í stóru hlutverki hjá þessu öfluga háskólaliði, ásamt Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur.
Dagný var jafnframt valin í 11 manna úrvalslið deildarinnar sem var tilkynnt í gærkvöld en í því eru fimm leikmenn Florida State. Lið hennar er talið þriðja sterkasta háskólalið Bandaríkjanna og er á leið í úrslitakeppni háskólameistaramótsins.