Lukaku ætti að útskýra hvers vegna hann er hjá Everton

Romelu Lukaku í leiknum gegn Liverpool um síðustu helgi.
Romelu Lukaku í leiknum gegn Liverpool um síðustu helgi. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að fyrst Romelu Lukaku finnist svona gaman að tjá sig ætti hann kannski að segja fólki frá því hvers vegna hann sé að spila fyrir Everton í dag, að láni frá Chelsea.

Lukaku hefur skorað sjö mörk á leiktíðinni fyrir Everton og margir furða sig á því að Chelsea skuli hafa lánað slíkan markaskorara til annars félags. Lukaku sagði við fjölmiðla að hann hefði ekki rætt við Mourinho síðustu tvo mánuði og Portúgalinn svaraði því í dag.

„Romelu finnst gaman að tjá sig. Hann er ungur og finnst það gaman. Það eina sem vantar er að hann tjái sig um það hvers vegna hann fór á láni til Everton,“ sagði Mourinho.

„Það er eitthvað sem hann talar aldrei um. Síðast þegar ég hafði samband við hann var það til að segja honum nákvæmlega það. Af hverju ræðir þú aldrei um ástæðuna fyrir því að þú ert ekki hérna? Þetta er eitthvað sem hann ætti að tala um því honum finnst svo gaman að tala. Hann ætti að útskýra hvers vegna hann er hjá Everton en ekki hjá Chelsea,“ sagði Mourinho.

Chelsea verður án framherjans Samuel Eto'o um helgina vegna meiðsla en talið er að Fernando Torres muni leysa hann af hólmi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert