Enski netmiðillinn sportsdirectnews.com segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Liverpool augastað á Kolbeini Sigþórssyni, íslenska landsliðsframherjanum hjá hollenska meistaraliðinu Ajax.
Liverpool keypti Luis Suárez af Ajax á sínum tíma og sagt er að tengslin á milli félaganna séu góð. Liverpool hafi miklar mætur á Kolbeini sem gæti styrkt leikmannahópinn og svo kunni að fara að Brendan Rodgers knattspyrnustjóri geri tilboð í hann í vikunni.