United klúðraði fjórum vítum og er úr leik

Vito Mannone fagnar með Craig Gardner eftir að hafa varið …
Vito Mannone fagnar með Craig Gardner eftir að hafa varið síðustu spyrnuna frá Rafael. AFP

Sunderland er komið í úrslitaleik enska deildabikarsins eftir vægast sagt spennandi viðureign við Manchester United, en Sunderland vann eftir vítaspyrnukeppni samtals 5:4.

Sunderland vann fyrri leikinn 2:1 en Manchester United komst yfir á Old Trafford í kvöld með marki Johnny Evans á 37. mínútu. Þannig var staðan eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar þar sem samtals var staðan jöfn, 2:2.

Allt virtist stefna í vítakeppni en David De Gea gerði sig sekan um hræðileg mistök í framlengingunni. Á síðustu mínútu hennar skaut Phil Bardsley að marki United, boltinn fór beint á De Gea í markinu sem missti hann klaufalega í netið. Allt ætlaði um koll að keyra enda Sunderland hársbreidd frá því að klára leikinn.

Javier Hernandez jafnaði hins vegar í samtals 3:3 með síðustu spyrnu leiksins í næstu sókn eftir sendingu frá Adnan Januzaj og tryggði heimamönnum vítaspyrnukeppni.

Í henni klúðraði Man Utd alls fjórum vítum sínum af fimm á meðan Sunderland skoraði úr tveimur vítum sínum. Rafael tók síðustu spyrnu United en lét Vito Mannone verja frá sér og tryggði það Sunderland sæti í úrslitum eftir ótrúlegan leik.

Vítakeppnin:
Craig Gardner skýtur yfir (Sunderland) 3:3
Danny Welbeck skýtur yfir (Man Utd) 3:3
Skot Steven Fletcher er varið (Sunderland) 3:3
Darren Fletcher skorar (Man Utd) 4:3
Marcos Alonso skorar (Sunderland) 4:4
Skot Adnan Januzaj er varið (Man Utd) 4:4
Ki Sung-Yeung skorar (Sunderland) 4:5
Phil Jones skýtur yfir (Man Utd) 4:5
Skot Adam Johnson er varið (Sunderland) 4:5
Skot Rafael er varið (Man Utd) 4:5

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert