Enn verður bið á því að argentínski sóknarmaðurinn Sergio Agüero geti spilað með Manchester City en hann verður ekki með sínum mönnum þegar þeir etja kappi við Arsenal á Emirates síðdegis á morgun.
Manuel Pellegrini, stjóri City, sagði á vikulegum fundi með fréttamönnum í dag að Agüero þyrfti eina viku til viðbótar til að geta snúið aftur í liðið en hann hefur ekkert komið við sögu frá því hann tognaði í leiknum á móti Barcelona í Meistaradeildinni hinn 12. þessa mánaðar.
Þó svo að Argentínumaðurinn hafi misst úr marga leiki á tímabilinu vegna meiðsla er hann fjórði markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 15 mörk.