Arsenal endurheimti fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld með 3:1 sigri gegn West Ham á Emirates Stadium.
West Ham náði forystunni í leiknum þegar Matt Jarvis skoraði með skalla af stuttu færi á 40. mínútu en Lukas Podolski jafnaði metin fjórum mínútum síðar.
Í síðari hálfleik bættu Oliver Giroud og Podolski við tveimur mörkum fyrir Arsenal sem vann sanngjarnan sigur.
Arsenal er með 67 stig í fjórða sætinu en Everton hefur 66 og á leik til góða.