Stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Southampton hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til Manchester United og Chelsea að þýði lítið fyrir þau að bjóða í vinstri bakvörðinn Luke Shaw.
Mauricio Pochettino, stjóri Southampton, tekur í sama streng en ætlar að halda Shaw í sínum herbúðum. United og Chelsea hafa bæði sýnt yfir miklum áhuga að krækja í Shaw en þessi 18 strákur hefur svo sannarlega slegið í gegn með Southampton á leiktíðinni.
United og Chelsea eru bæði á höttunum eftir vinstri bakverði í lið sín fyrir næsta tímabil en hvort skilaboð stjórnarformanns Southampton verði til þess að þau snúi sér að öðrum leikmanni heldur en Shaw skal ósagt látið.