Landsliðsmaðurinn Kári Árnason tók þátt í sannkallaðri markaveislu þegar Wolves og Roterham áttust við í ensku C-deildinni í knattspyrnu í dag.
Úlfarnir, sem hafa tryggt sér sæti í B-deildinni á næsta tímabili, fögnuðu sigri, 6:4. Staðan var jöfn, 4:4, þegar skammt var til leiksloka en Úlfarnir skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og tryggðu sér sigurinn.
Kári lék allan tímann fyrir Rotherham, sem er í fjórða sæti deildarinnar og fer í umspil um sæti í B-deildinni.