„Moyes hefði átt að fá lengri tíma“

David Moyes.
David Moyes. AFP

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal telur að Manchester United hefði átt að gafa David Moyes lengri tíma með liðið en Skotinn var rekinn úr starfi Englandsmeistaranna á þriðjudaginn.

„Nú er ég ekki alveg upplýstur en þetta kom á óvart. Undir þessum kringumstæðum þá viltu að knattspyrnustjórinn fái fyrstur að vita hvað standi til en það lítur út fyrir að svo hafi ekki verið í þessu tilviki.

En það sem mér þykir leiðinlegast er að hann skildi hafa verið rekinn. Moyes hefur sýnt að hann hefur hæfileika og hefur staðið sig vel sem stjóri og hann hefði átt að fá lengri tíma hjá félaginu,“ sagði Wenger en hann er sá stjóri sem hefur starfað lengst samfleytt í ensku úrvalsdeildinni. Frakkinn tók við liði Arsenal árið 1996.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert