Luis á leið til Chelsea

Filipe Luis í baráttu við Gareth Bale.
Filipe Luis í baráttu við Gareth Bale. AFP

Fregnir frá Spáni herma að Chelsea sé við það að tryggja sér þjónustu brasilíska varnamannsins Filipe Luis frá spænska meistaraliðinu Atlético Madrid.

Luis er vinstri bakvörður og er talið að Chelsea muni greiða 19,8 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 28 ára gamall og á að baki 4 leiki með brasilíska landsliðinu. Hann hefur verið í herbúðum Atlético Madrid frá árinu 2010.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert