Gylfi Þór Sigurðsson var hetja sinna manna í Swansea þegar liðið lagði Manchester United, 2:1, í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Gylfi lagði upp fyrra markið í fyrri hálfleik og skoraði sjálfur sigurmarkið rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok.
„Varnarleikurinn var lykillinn hjá okkur. Þjálfarinn setti það frábærlega upp og við sýndum mikinn karakter í leiknum. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur gegn liði með nýjan stjóra, en við áttum þetta skilið,“ sagði Gylfi við enska fjölmiðla eftir leikinn.
Sjá: Gylfi allt í öllu og draumurinn rættist