Manchester United hyggst bjóða Real Madrid 56 milljónir punda, 10,8 milljarða íslenskra króna, í argentínska landsliðsmanninn Angel Di Maria að því er fram kemur í spænska blaðinu Marca.
Di Maria hefur óskað eftir því að fá að yfirgefa Evrópumeistaranna og að sögn spænskra fjölmiðla verður hann ekki í leikmannahópi Real Madrid í kvöld þegar það mætir Atlético Madrid í síðari leik liðanna í leiknum meistarar meistaranna.