Di María: Vil vinna fjölda titla með Man. Utd

Ángel di María með knattspyrnustjóranum Louis van Gaal á Old …
Ángel di María með knattspyrnustjóranum Louis van Gaal á Old Trafford í dag. AFP

Ángel di María segist vera kominn til Manchester United til að hjálpa liðinu að komast aftur í Meistaradeild Evrópu og vinna fjölda titla.

Argentínumaðurinn er sá dýrasti sem enskt knattspyrnufélag hefur keypt en hann kom til United frá Real Madrid fyrir 59,7 milljónir punda. Fyrsti leikur hans gæti orðið gegn Burnley á laugardaginn.

„Ég vil hjálpa til við að gera United að mikilvægu liði enn á ný, og vinna fjölda titla með því. Ég kann vel við liðið og vildi koma hingað þrátt fyrir að það sé ekki að spila í Meistaradeildinni. Ég vil hjálpa liðinu að komast þangað. Ég er ánægður með að stjórinn hafi viljað fá mig til Manchester United,“ sagði di María eftir að hafa verið úthlutað treyju númer 7 hjá félaginu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert