Tottenham hefur samið við franska knattspyrnufélagið Montpellier um kaup á varnarsinnaða miðjumanninum Benjamin Stambouli.
Stambouli á sjálfur eftir að semja um kaup og kjör við Tottenham og gangast undir læknisskoðun, samkvæmt yfirlýsingu á heimasíðu Montpellier, en ætla má að hann verði svo leikmaður Lundúnaliðsins.
Stambouli er 24 ára gamall og varð franskur meistari með Montpellier vorið 2012. Hann hefur verið viðloðandi franska landsliðið.