Liverpool hefur lánað Sunderland úrúgvæska varnarmanninn Sebastián Coates út yfirstandandi leiktíð.
Coates, sem er 23 ára gamall, hefur aðeins leikið 24 leiki með Liverpool og skorað 2 mörk síðan hann kom frá Nacional sumarið 2011.
Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá Coates en hann missti af mestum hluta síðasta keppnistímabils af þeim sökum. Hann fór að láni heim til Nacional til að ná sér og vann sér sæti í landsliði Úrúgvæ fyrir HM.