Wayne Rooney fyrirliði Manchester United segir það ekki hafa áhrif á sitt hlutverk hjá liðinu að kólumbíski framherjinn Falcao sé kominn að láni frá Mónakó.
„Ég veit ekki hvernig koma Falcaos ætti að hafa áhrif á mitt hlutverk. Mér finnst þetta stórkostleg ráðning. Hann er einn besti leikmaður heims. Þetta sýnir skýrt hvert Manchester United stefnir,“ sagði Rooney á fréttamannafundi vegna vináttulandsleiks Englands og Noregs á miðvikudag.
„Þetta er afar spennandi. Við erum með spennandi lið. Ég hlakka til komandi áskorana og vonast til að þetta gangi upp,“ sagði Rooney.