Di Maria: Búinn að æfa þessar spyrnur

Di Maria í leiknum í dag.
Di Maria í leiknum í dag. AFP

Argentíski miðjumaðurinn í liði Manchester United, Ángel di Maria var himinlifandi með frammistöðu síns liðs gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í dag en United valtaði hreinlega yfir Lundúnarliðið 4:0 en di Maria spilaði afar vel og skoraði meðal annars eitt mark.

„Ég er mjög ánægður með fyrsta leikinn minn á Old Trafford og með fyrsta markið mitt. Ég hef verið að æfa þessar aukaspyrnur í vikunni svo að þetta kemur ekki mikið á óvart,“ sagði di Maria.

Juan Mata skoraði einnig eitt mark fyrir United og var að sjálfsögð einnig ánægður með leik liðsins.

„Við spiluðum  miklu betur. Frá upphafi til síðustu mínútu reyndum við að skora mörk og það er það sem við þurfum að gera með þessa leikmenn sem við höfum,“ sagði Mata.

Það er mjög mikilvægt að vinna og þetta mun vonandi koma til með að vera fyrsta skrefið okkar í langri sigurgöngu,“ sagði Mata.

Juan Mata fagnar.
Juan Mata fagnar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert