Chelsea býður Hazard nýjan samning

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Chelsea hefur boðið belgíska landsliðsmanninum Eden Hazard nýjan fimm ára samning við félagið að því er breskir fjölmiðlar greina frá í dag.

Hazard kemur til með að fá 200 þúsund pund í vikulaun skrifi hann undir samning en það jafngildir tæpum 38 milljónum króna.

Hazard, sem er 23 ára gamall, kom til Chelsea frá franska liðinu Lille fyrir tveimur árum og hefur átt sérlega góðu gengi að fagna með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert