Hummels efstur á óskalistanum hjá Arsenal

Mats Hummels.
Mats Hummels. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, ætlar að styrkja lið sitt í janúarglugganum og sá leikmaður sem Wenger vill helst fá er þýski miðvörðurinn Mats Hummels.

Hummels er 25 ára gamall sem leikur með Dortmund en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United síðustu mánuðina. Hummels er nú efstur á óskalistanum hjá Wenger sem gæti þurft að punga út 32 milljónum punda fyrir leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert