Argentínski knattspyrnumaðurinn Erik Lamela segir að markið umtalaða sem hann skoraði fyrir Tottenham gegn Asteras Tripolis í Evrópudeildinni í gærkvöld sé hans besta á ferlinum en þó ekki það fyrsta sem hann skorar á þennan hátt.
Lamela skoraði með svokallaðri „rabona-spyrnu“ en hann skaut viðstöðulaust frá vítateig með því að smella vinstri fætinum afturfyrir hægri fótinn og boltinn steinlá í marki Grikkjanna.
Ótrúlegt mark hjá Lamela - myndskeið.
„Ég hef áður skorað svona mark en það gerði ég þegar ég spilaði með unglingaliði River Plate heima í Argentínu. Þetta var þó ekki efst í huga mér þegar boltinn barst til mín - ég var ekki búinn að ákveða fyrirfram að spyrna á þennan hátt. Það bara gerðist svona skyndilega. Besta markið mitt á ferlinum? Já, það held ég,“ sagði Lamela við London Evening Standard.
Hann skoraði tvö marka Tottenham sem vann stórsigur, 5:1, en Harry Kane gerði hin þrjú mörkin.