Velgengni West Ham United heldur áfram í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en liðið vann í dag Manchester City 2:1 á Upton Park í fyrsta leik dagsins.
West Ham hafði 1:0 yfir að loknum fyrri hálfleik eftir að Morgan Amalfitano skoraði. Diafra Sakho bætti við öðru marki á 74. mínútu en mínútu síðar minnkaði David Silva muninn.
West Ham skellti sér upp að hlið Southampton í 3. sæti deildarinnar en City er í 2. sæti með 17 stig, stigi á undan Southampton og West Ham.
Fylgst var með gangi í leiknum sem og öðrum leikjum dagsins í ENSKA BOLTANUM Í BEINNI.