Aleksandar Tonev leikmaður skoska meistaraliðsins Celtic var í dag úrskurðaður í sjö leikja bann fyrir kynþáttarníð gagnvart móterja sínum.
Tonev, sem er búlgarskur landsliðsmaður og er í láni frá Aston Villa, notaði niðrandi orð um Shay Logan leikmann Aberdeen í viðureign liðanna í síðasta mánuði og þarf nú að gjalda fyrir þessi orð en Celtic hyggst áfrýja úrskurði aganefndar skoska knattspyrnusambandsins.