Ítalska liðið Napoli vísar þeim sögusögnum á bug að það hyggist reyna að krækja í ítalska sóknarmanninn Mario Balotelli frá Liverpool þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar.
Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Rafael Benítez fyrrverandi stjóri Liverpool og nú þjálfari Napoli sé spenntur fyrir því að fá Balotelli en forráðamenn Napoli segja ekkert vera til í þessum fréttum.
Balotelli hefur enn ekki tekist að skora í ensku úrvalsdeildinni fyrir Liverpool á leiktíðinni en hann skoraði fyrra mark liðsins í sigrinum gegn Swansea í ensku deildabikarkeppninni í fyrrakvöld.