Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, staðfesti á fréttamannafundi sínum sem nú stendur yfir að David Silva muni ekki spila með liðinu næstu þrjár til fjórar vikurnar.
Silva er meiddur á hné og spilar því ekki gegn Manchester United á sunnudaginn, og missir jafnframt af leik gegn CSKA Moskva í Meistaradeild Evrópu og deildaleikjum við QPR og Swansea. Spurning er hvort hann verði orðinn heill heilsu þegar City tekur á móti Bayern München í Meistaradeildinni 25. nóvember.
„David er mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur en við erum með stóran hóp og næsti maður verður að fylla í skarðið," sagði Pellegrini en ensku meistararnir hafa nú tapað tveimur leikjum í röð. Gegn West Ham í úrvalsdeildinni um síðustu helgi og gegn Newcastle í bikarnum í vikunni.