Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í dag útnefndur leikmaður októbermánaðar hjá Swansea City og honum voru afhent verðlaunin fyrir stundu.
Frá þessu var skýrt á Twitter-síðu félagsins. Gylfi lagði upp þrjú mörk fyrir Swansea í úrvalsdeildinni í október en markið hans glæsilega gegn Arsenal hafði þó ekki áhrif í þessari kosningu þar sem það var skorað í nóvember.
We are delighted to announce the @SwansOfficial @GWFX_Goldenway #GWPlayeroftheMonth for Oct is Gylfi Sigurdsson pic.twitter.com/9hLCwG4kGP
— GWFX Global (@GWFX_Goldenway) November 20, 2014